Metfjöldi gesta á íslenskum söfnum

Gestafjöldi safna og skyldrar starfsemi var í sögulegu hámarki á síðasta ári. Ríflega 2,1 milljón gesta sótti söfn og sýningar heim á árinu. Þetta er í fyrsta sinn sem gestafjöldinn fer yfir tvær milljónir.

Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu íslands, en þar segir að gestum hafi fjölgað um ríflega 400 þúsund milli ára, eða um 24%.

Frá aldamótum hefur gestum safna og skyldrar starfsemi fjölgað nær árvisst eftir að hafa staðið að miklu leyti í stað á seinni hluta síðasta áratugar 20. aldar. Svipuðu máli gegnir um fjölda safna og sýningarstaða. 

Ætla má að aukin aðsókn gesta að söfnum og skyldri starfsemi standi í beinu sambandi við aukið framboð sýningarstaða, aukna fjölbreytni sýninga og almennt fjölþættari starfsemi safna, sem og stórauknum ferðamannastraumi til og um landið, að .ví er segir í tilskrifi Hagstofunnar í dag.