Aldrei hafa fleiri Íslendingar skorað á ráðamenn hér á landi í undirskriftasöfnun en í yfirstandandi herhvöt Kára Stefánssonar sem vill að stjórnvöld auki fjárframlög til heilbrigðismála.
Yfir áttatíu þúsund manns hafa nú skrifað undir undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar um endurreisn heilbrigðiskerfisins og þar með er söfnunin orðin sú stærsta í sögunni þar sem skorað er á ráðamenn á Íslandi.
Langfjölmennasta undirskriftasöfnunin hingað til snérist um að halda Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýrinni og hún hét Hjartað í Vatnsmýrinni. Undir hana skrifuðu tæplega 70 þúsund manns, eða 69.809 manns, árið 2013.
Fleiri skrifuðu þó undir undirskriftasöfnun til breskra stjórnvalda til að mótmæla notkun hryðjuverkalaga til að frysta íslenskar eignir þar í landi eftir að bankarnir féllu. Það var InDefence sem stóð fyrir þeirri söfnun, og um 83 þúsund undirskriftir náðust. Undirskriftarsöfnun Kára er því ekki fjarri því að verða stærri en hún einnig.