„Mér finnst ekkert stórlega mikið sitja eftir nema það að kjarasamningar náðust sem var mjög gott mál. Mér finnst hafa komið í ljós mjög skýrt hvað sameinar þessa þrjá flokka. Það er vissulega að gefa aðeins í þegar kemur að innviðum en að standa ekki í neinum stórum kerfisbreytingum. Að vinna ekki að sanngjarnari arði fyrir auðlindirnar okkar. Þess í stað að standa í bútasaumum á þeim kerfum sem eru nú þegar til staðar.“
Þetta sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata í Kastljósi í gærkvöldi. Rétt tvö ár eru liðin frá þingkosningum. Í Kastljósi var farið yfir hvernig hefur gengið hjá ríkisstjórninni
Mestu vonbrigðin
Að mati Þórhildar Sunnu voru mestu vonbrigðin að VG skyldi fara í eina sæng með Sjálfstæðisflokknum. Hún sagði:
„Það sem olli okkur og að ég held kjósendum VG mestum vonbrigðum, er að við áttum ekki von á því að flokkurinn myndi hefja samstarf með Sjálfstæðisflokknum og ganga algjörlega frá því að hér yrði sett ný stjórnarskrá á þessu tímabili. Það er algjörlega útséð með þessa ríkisstjórn. Það var loforð sem var gefið sem er ekki að finna í þessum sáttmála. Það er kannski einna helst þetta. Sáttmálinn sem við höfum hérna fyrir þessa ríkisstjórn er ágætur út af fyrir sig og þeim miðar ágætlega í sumu þar. Það er einna helst það sem vantar í hann, eins og að við fáum sálfræðiþjónustu eins og aðra heilbrigðisþjónustu.“