Mesta viðskiptastríð sögunnar

Viðskiptastríð hófst á milli Bandaríkjanna og Kína í nótt þegar refsitollar að upphæð $35 milljarða bandaríkjadala á ákveðnar kínverskar vörur tóku gildi.

Um er 25 prósenta innflutningstolla á rafmagns- og hátæknivörur frá Kína. Kínverjar segjast ekki eiga annarra kosta völ en að grípa til gagnaðgerða.

Vöruskiptajöfnuður Bandaríkjanna gagnvart Kína var neikvæður um rúmlega 375 milljarða bandaríkjadala í fyrra, og hefur hann aldrei verið hærri.

Kínversk stjórnvöld segja Bandaríkin búin að hleypa af stað mesta viðskiptastríði sögunnar.

Lesa alla frétt á vef BBC