Þorsteinn M. Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að mesta veðurhæðin í miðvikudagsáhlaupinu gangi yfir á tíunda tímanum í morgun, en veður fari heldur að lægja upp úr hádegi.
Varnaðarorð Veðurstofunnar eeru annars þessi: \"Með morgninum fer kröpp og djúp lægð hratt til norðurs fyrir vestan land. Úrkomusvæði lægðarinnar gengur inn á Suðvesturland og hvessir þá verulega, en búist er við suðaustanstormi eða -roki víða á landinu er líður að hádegi og jafnvel ofsaveðri vestan til. Rignir talsvert á sunnanverðu landinu í dag, úrhelli að kalla suðaustan til. Slydda norðvestan til, en úrkomulítið á Norðausturlandi. Vakin er athygli á gulum og appelsínugulum viðvörunum, sem eru í gildi.
Um hádegi er lægðin er að mestu farin hjá og lægir þá ört og rofar til á vestanverðu landinu, þó áfram verði stormur og sums staðar úrkomusamt fyrir austan fram á nótt. Illviðrinu fylgja hlýindi þ.a. snjórinn heldur áfram að bráðna, en þá er vissara er að halda niðurföllum og ræsum opnum.
Á morgun er veðrið gengið niður, en í staðinn komin stíf suðvestanátt með éljum og mun lægri hitatölum. Léttir þó smám saman til fyrir norðan og austan. Á föstudag er síðan von á enn einni óveðurslægð, þó að það veður ná ekki sömu hæðum og í dag.“