Mesta makrílgengd sem fundist hefur

Ekki hefur mælst meira af makríl innan íslenskrar efnahagslögsögu og í ár að því er fram kemur í tilkynningu Hafrannsóknastofnunar sem í gær lauk rúmlega fimm vikna löngum leiðangri sínum umhverfis Ísland og við Grænland.

Þetta er sjöunda árið í röð sem leiðangur af þessu tagi er farinn í samvinnu við Norðmenn, Færeyinga og Grænlendinga en hann felst í því að kanna dreifingu og magn helstu uppsjávarfiska í Norðaustur-Atlantshafi ásamt því að skða magn átu og umhverfisþætti á svæðinu.

Alls voru teknar prufur og sýni á 92 fyrirfram ákveðnum rannsóknarstöðvum til að meta magn makríls og annarra uppsjávarfiska. Bráðabirgðaniðurstöður sýna meira magn og suðlægari útbreiðslu makríls sunnan við Ísland en undanfarin ár. Þá var makríll fyrir öllu Vestur- og Austurlandi í svipuðu magni og fyrri ár, en lítils varð vart norður af landinu.

Samkvæmt þessum bráðabirgðaniðurstöðum er heildarmagn makríls á Íslandsmiðum meira en nokkru sinni frá því athuganir hófust sumarið 2009.