Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um eitt prósent í febrúar samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands. Þetta er mesta lækkun sem hefur sést milli mánaða síðan í desember 2010, þegar íbúðaverð lækkaði um 1,2 prósent milli mánaða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íbúðalánasjóði.
Vísitala íbúðaverðs mælir breytingu á íbúðaverði samkvæmt þinglýstum kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu hverju sinni.
Árshækkun íbúðaverðs mælist nú 3,7 prósent, sem er minnsta 12 mánaða hækkun sem hefur mælst síðan í maí 2011. Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um eitt prósent milli janúar og febrúar og sérbýli ögn meira, eða um 1,2 prósent.
Í tilkynningunni kemur fram að hafa verður í huga að töluvert flökt getur verið á mælingum milli mánaða. Það er bæði vegna þess að tegundir þeirra fasteigna sem ganga kaupum og sölum eru ólíkar en vísitala íbúðaverðs tekur eingöngu tillit til stærðar og þess hvort um sé að ræða fjölbýli eða sérbýli. Ekki er tekið tillit til þess hvort um nýbyggingu sé að ræða eða ekki.