Markmið húsnæðisstefnu Reykjavíkur kemur fram í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Þar er gert ráð fyrir þéttingu byggðar og að 90 prósent allra nýrra íbúða á skipulagstímabilinu rísi innan núverandi þéttbýlismarka.
Í áætlun borgarinnar eru yfir 5.300 íbúðir á byggingarsvæðum á framkvæmdastigi eða í samþykktu deiliskipulagi, 4.177 íbúðir í formlegu skipulagsferli og rúmlega 9.350 til viðbótar í undirbúningi eða á þróunarsvæðum í skoðun. Alls eru þetta 18.799 íbúðir.
Dagur B. Eggertsson kynnti drög að húsnæðisstefnu borgarinnar á borgarstjórnarfundi í dag sem sendur var út í beinni útsendingu.
Samkvæmt áætlunum Reykjavíkurborgar er stefnt að því að hafin verði uppbygging á um 7000 íbúðum fram til ársloka 2020. Þar af er gert ráð fyrir vel yfir 3000 íbúðum á vegum leigu- og húsnæðisfélaga.
Í húsnæðisstefnu Reykjavíkur verða 90 prósent allra nýrra íbúða á skipulagstímabilinu innan núverandi þéttbýlismarka. Þrjú svæði gegna lykilhlutverki í þróun á næstu áratugum: Vatnsmýri, Elliðaárvogur og Miðborgin-Gamla höfn.
Stefnt verði að því að allt að 25 prósent íbúða verði miðaðar við þarfir þeirra sem ekki vilja eða geta lagt mikið fé í eigið húsnæði.
Í húsnæðisáætluninni eru töluleg markmið um þann fjölda íbúða sem þurfa að fara í uppbyggingu til lengri og skemmri tíma. Þá eru skilgreind helstu byggingarsvæði í Reykjavík og hvernig uppbyggingu íbúðahúsnæðis sem Reykjavíkurborg beitir sér sérstaklega fyrir verður háttað í samvinnu við verkalýðshreyfinguna, húsnæðissamvinnufélög, samtök eldri borgara, stúdenta og einkaaðila, auk eigin leigufélags borgarinnar, Félagsbústaða