Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skýtur föstum skotum að Viðreisn og Samfylkingunni vegna skrifa um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Hann segir að óska eigi Bretum til hamingju en leiða má líkur að því að Brynjar sé að bregðast við aðsendri grein Þorsteins Víglundssonar, þingmanns Viðreisnar, í Fréttablaðinu í gær.
Þar segir Þorsteinn það sorglegt að horfa upp á Breta snúa baki við þeim hugsjónum sem búa að baki Evrópsamvinnu. „Hugsjónina um frið á okkar tímum, um frelsi, mannréttindi, mannúð, jöfnuð, lýðræði og samvinnu þjóða. Samvinnu þar sem hagsmunir einstakra ríkja eru ekki ráðandi, heldur sú fallega hugsjón að saman getum við skapað betri heim.“
Þorsteinn segir sambandið hafa skilað miklum efnahagslegum ávinningi með sameiginlegum innri markað án tolla og viðskiptahindrana, sem hafi skilað íbúum álfunnar bættum lífsgæðum og lægra vöruverði. Nefnir hann afnám reikigjalda símafyrirtækja í því samhengi. Þá bendir hann á að Evrópusamvinnan hafi tryggt lengsta samfellda friðartímabil í álfunni.
„Vegna þessa er sorglegt að horfa á bak Bretum úr Evrópusambandinu. Ég held þó að þegar fram í sækir muni Bretar ekki líta á útgönguna sem frelsun Bretlands. Að þeir Boris Johnson og Nigel Farage muni ekki skipa sér á bekk með frelsishetjum Breta á borð við Churchill eða Nelson. Ég held að sagan verði þeim ekki svo hagfelld.“
Segir bandalagið ekki hafa stuðlað að friði
Brynjar hafnar í megindráttum þeim röksemdum sem fram koma í pistli Þorsteins.
„Merkilegur þessi pirringur Viðreisnar og Samfylkingar yfir útgöngu Breta úr ESB. Þjóðir eru sínir eigin gæfusmiðir og taka ákvarðanir sem þær telja bestar fyrir sig. Þannig er nú lýðræðið. Við eigum að óska þeim til hamingju með þessa ákvörðun og velfarnaðar þótt við kunnum að hafa aðra skoðun á því hvað þeim er fyrir bestu,“ skrifar Brynjar.
„Svo er það ekki þannig að þetta bandalag hafi stuðlað að friði, og lýðræði í álfunni. Löndin við miðjarðarhafið eru molum og langt frá því sjálfbær. Meira að segja Frakkar munu ekki eiga fyrir skuldbindingum sínum eftir nokkur ár.
Þessi lönd hanga saman vegna viðskiptahagsmuna en eru að molna niður innan frá vegna lýðræðishalla og skorts á samkeppnishæfni við aðrar heimsálfur. Mjög líklega er þetta ástæðan fyrir því að Bretar vilja yfirgefa ESB.“