Merkel brettir upp ermarnar

Angela Merkel, sem er nú loks að hefja fjórða fjórða kjörtímabil sitt sem kanslari eftir lengstu stjórnarmyndunarkrísu Þýskalands, segir brýnt að nýja stjórnin taki strax til starfa. Tveir þriðju hlutar flokksfulltrúa Sósíal demókrataflokksins féllust á stjórnarsamstarfið um helgina.

„Nú næstum sex mánuðum eftir kosningar er fólk óþreyjufullt eftir því að eitthvað fari að gerast,“ sagði Merkel. Í stuttri yfirlýsingu í morgun, sagðist hún ætla að vinna að atvinnusköpun og velmegun og tryggja Þýskalandi sterka rödd innan ESB.