Mér hugnast þetta alls ekki

“Mér hugnast þetta alls ekki og líst ekkert á að bandaríski herinn ætli að hafa aukinn viðbúnað hér á landi. Hvað þá ef það er gert án samráðs við íslensk stjórnvöld eins og fréttir morgunsins benda til.”

Þetta segir Katrín Jakobsdóttir í samtali við Hringbraut.

Katrín, formaður VG, segir að fulltrúi Vinstri grænna í utanríkismálanefnd þingsins hafi þegar óskað eftir fundi um málið.

Í gær kom fram hjá vefritinu Stars and Stripes að Bandaríkjaher hygist snúa aftur til Keflavíkur til að koma sér upp aðstöðu fyrir kafbátaleitarvélar.  Fyrst yrði herinn aðeins með tímabundna aðstöðu hér, en gæti seinna meir farið fram á aðstöðu til langframa.

 Tíu ár eru liðin frá því bandaríski herinn hvarf af landi brott.

Fram hefur komið í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu og hjá ráðherra, Gunnari Braga Sveinssyni í Morgunútvarpi Rúv í morgun, að ekkert hafi verið rætt um að bandaríski herinn hafi hér setu til lengri tíma.

Katrínu Jakobsdóttur  líst ekkert á blikuna. Fleiri hafa spurt hverjir hafi forræði í herstöðinni á Suðurnesjum, Íslendingar eða Bandaríkjamenn. Aðrir hafa talað fyrir mikilvægi þess að verja landið á óvissutímum vegna stjórnar Pútíns Rússlandsforseta.

Uppfært: kl. 12.45: 

Samþykkt hefur verið síðan fréttin var birt að fundur fari fram í ut­an­rík­is­mála­nefnd Alþing­is í fyrra­málið vegna málsins að klröfu Steinunnar Þóru Árnadóttur, fulltrúa VG í nefndinni. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra mun mæta á fundinn.

mbl.is hefur eftir talsmanni varn­ar­málaráðuneyt­is Banda­ríkj­anna að ekki sé stefnt að varanlegri auk­inni viðveru banda­rískra herflug­véla hér á landi.