Mér hefur verið hótað

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, segir að sér hafi verið hóta öllu illu vegna afstöðu hans til hingaðkomu fólks sem ekki býr við neyð í eigin heimalandi. Ásmundur hefur ekki sparað sig í umræðunni.

Hann segir að sama gildi um Semu Erlu Serdar og að hann finni til með henni. „Þó ég sé ekki sammála henni í málinu.“

Ásmundur segir fólk skora á hann að bjóða sig fram til forystu í kjördæminu, sækjast eftir fyrsta sæti lista flokksins í Suðurkjördæmi. Það munu trúlega Ragnheiður Elín Árnadóttir, Elliði Vignisson og Unnur Brá Konráðsdóttir gera. Ásmundur segist gera upp hug sinn á næstu dögum.

Viðtalið við Ásmund verður á dagskrá klukkan 21:45 í kvöld. Þjóðbraut er á dagskrá milli klukkan 21 og 22 í kvöld.