„Stjórnmálamenn eru kosnir af þjóðinni og starfa í umboði hennar. Samt eiga þeir fjarska auðvelt með að gleyma einmitt því að þeir eru fulltrúar fólksins í landinu. Þegar óánægja brýst út meðal almennings þá ranka stjórnmálamennirnir vissulega við sér en um leið er berlega ljóst að þeir eru sáróánægðir með það vesen sem fylgir því að þurfa að taka tillit til vilja kjósenda. Þeim fellur miklu betur að hafa vit fyrir fólki.“
Þetta segir Kolbrún Bergþórsdóttir í pistli í Fréttablaðinu í dag. Þar fjallar Kolbrún um mál Muhammeds litla sem er aðeins sjö ára og til stóð að henda úr landi. Þegar fólkið í landinu frétti af þeim tíðindum mótmælti hún hástöfum. Að lokum ákvað Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra að fresta brottflutningi. Kolbrún gagnrýnir harðlega að það sé oft ekki fyrr en fólkið rís upp og mótmælir heimskulegum ákvörðunum stjórnmálamenn endurskoði ákvörðun sína. Kolbrún segir:
„Þegar fólkið rís upp og bendir á að það hafi allt aðra skoðun en þá sem stjórnmálamönnunum þykir heppilegust þá má næstum heyra andvarp viðkomandi, sérstaklega ef hann er ráðherra í ríkisstjórn: Óskaplegt vesen er þetta, þarf ég virkilega að taka mark á þessu?“
Þá bendir Kolbrún á að Áslaug Arna hafi viðurkennt að þrýstingur frá almenningi hafi orðið til þess að brottvísun fjölskyldunnar frá landinu var frestað. Kolbrún segir:
„Það átti að svipta drenginn örygginu og hamingjunni sem hann hefur búið við í íslensku samfélagi. Ástæðan fyrir því að ekkert hefur orðið af brottvísun er sú að einstaklingar sem þekktu til hins sjö ára gamla Muhammeds gátu ekki hugsað sér að sitja þegjandi hjá og horfa upp á það miskunnarleysi sem sýna átti honum og fjölskyldu hans. Réttlætiskennd þeirra var misboðið og þeir létu í sér heyra.“
Kolbrún segir að hrósa megi Áslaugu fyrir að hafa brugðist við en segir á sama tíma að allir viti að hún var að láta undan þrýstingi.
„ ... það hefði lýst raunverulegri umhyggju ef ráðherrann hefði um leið lagt áherslu á að það væri siðferðileg skylda okkar Íslendinga að leggja meira af mörkum þegar kemur að því að skjóta skjólshúsi yfir fjölskyldur í neyð, sem leita hingað til lands í von um að fá tækifæri til að skapa sér nýja og bjarta framtíð,“ bætir Kolbrún við og segir að gleðilegt væri ef ráðamenn landsins byggju yfir sömu réttlætiskennd og þeir einstaklingar sem brugðust við í máli Muhammeds litla. Þá segir Kolbrún að lokum:
„Það væri verulega ánægjuleg tilbreyting að sjá ráðherra stíga fram, að fyrra bragði, án alls þrýstings og segja:
„Mér er misboðið, ég get ekki og vil ekki horfa upp á fólk þjást. Við eigum að veita einstaklingum í neyð þá aðstoð sem hægt er, og sérstaklega huga að velferð barna. Við eigum að gera svo miklu meira en við erum að gera.“
Einmitt á þennan hátt hugsar fjöldi einstaklinga hér á landi. Af hverju getur það sama ekki átt við um ráðherra?“
Hér má lesa pistil Kolbrúnar í heild sinni.