Menntun og heilsa er ekki í forgangi

Á undanförnum fimm árum hafa útgjöld ríkisins til mennta- og heilbrigðismála verið skorin niður um nærri sjö milljarða að því er fram kemur í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins í dag.

Þar segir jafnframt að á sama tíma megi finna fjölmörg dæmi um raunaukningu útgjalda  stofnana á árunum 2009 til 2014 þegar rýnt sé í ríkisreikning hvers árs. Aukningin nemi nærri 14 milljörðum en þetta sé einmitt dæmi um forgangsröðun stjórnmálaflokkanna sem ræða þessa dagana á Alþingi hvernig nærri 700 milljörðum verði varið á næsta ári.

Fulltrúar flokkanna munu svara því í dag á opnum umræðufundi Samtaka atvinnulífsins í Hörpu kl. 15 hvaða málaflokka þeir vilja setja í forgang og hvernig þeir vilja byggja upp innviði samfélagsins.