Menntamálaráðuneytið segir að sumarfrí nemenda geta valdið afturför í námi

Menntamálaráðuneytið segir að sumarfrí nemenda geta valdið afturför í námi því fyrri þekking og færni gleymist sé henni ekki haldið við. Kallar ráðuneytið þetta svokölluð sumaráhrif. Hvað lestrarfærni varðar getur slík afturför numið einum til þremur mánuðum. Hjá barni í 6. bekk sem ekki les yfir sumartímann getur uppsöfnuð afturför því numið einu og hálfu skólaári. Yngstu lesendurnir, nemendur í 1.-4. bekk, eru sérstaklega viðkvæmir fyrir sumaráhrifum en börn sem glíma við lestrarerfiðleika, búa við litla lestrarmenningu heima fyrir eða eiga annað móðurmál en íslensku, eru einnig í áhættuhópi. 

Ráðuneytið segir að það þarf ekki mikið til að krakkar viðhaldi færni sinni eða taki framförum. Rannsóknir sýni að til þess að koma í veg fyrir afturför nægir að lesa að jafnaði tvisvar til þrisvar í viku í um það bil 15 mínútur í senn. Best er þó að lesa í 15 mínútur á hverjum degi og velja þá hæfilega krefjandi lesefni á áhugasviði viðkomandi. Skemmtilegar bækur og hæfilega flóknir textar eru besta hvatningin fyrir unga lesendur. Hver einasti texti er tækifæri, hvort sem hann er í bók, á blaði eða á skjá.