Náttúruminjasafns Íslands var stofnsett með lögum árið 2007 safnið er hins vegar ennþá heimilislaust og stendur ekki undir nafni að því leytinu að þar er ekkert hægt að hafa til sýnis. Menntamálaráðherra hefur verið gagnrýndur fyrir að draga lappinar í því að koma safninu í það horf svo það standi undir því að vera eitt af þremur höfuðsöfnum Íslands eins og lög segja til um. Fjárfestar sem nefna sig Perla norðursins ehf hafa nú boðið stóran samning svo hægt verði að bæði reka og setja upp sýningu á einni hæð í Perlunni. Um er að ræða fjárfesta, sem vinna m.a. fyrir lífeyrissjóði.
Safnið er nú til húsa í gömlu Loftskeytamiðstöðinni sem hýsir skrifstofur þess. Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður segir í viðtali á Hringbraut í kvöld að menntamálaráherra frá því árið 2007 hafi allir verið sofandi í málinu, nú hafi Illugi Gunnarsson núverandi ráðherra hins vegar rumskað og sent bréf um að ríkið komið að einhverju leyti að samningum um nýtt safn. Því verði fljótt svarað, segir Hilmar en ekki hægt að nefna neinar tölur í því hvað ríkið þyrfti að leggja fram. Perla norðursins ehf muni leggja milljarða í safnið miðað við tilboðið. Stofnkostnaður við að setja upp sýninguna verður rúmlega einn og hálfur milljarður króna, samkvæmt Hilmari. Hluthafar í Perlu norðursins eru Landsbréf/ITF1, Perluvinir ehf. og Salta ehf & Lappland ehf.