Mennirnir tveir hafa gefið sig fram

Mennirnir tveir, sem lýst var eftir í gærkvöldi, hafa gefið sig fram. Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan sendi frá sér rétt í þessu. 

Hringbraut greindi frá því í gær að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi leitað til almennings til að finna mennina og þakkar lögreglan fyrir veitta aðstoð.

Sjá hér: Þekkir þú þessa menn? Lögreglan óskar eftir aðstoð þinni

„Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hafa samband við lögregluna í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ stóð í tilkynningu lögreglu.

Nú eru þeir fundnir en ekki kemur fram hvers vegna lögreglan vildi ná af þeim tali.