Mennirnir tveir sem hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegrar líkamsárásar á Akureyri voru látnir lausir í morgun. Hvorki er talið að það þjóni rannsóknar- né almannahagsmunum að hafa þá áfram í haldi.
Málið mun fara sína leið í réttarkerfinu en búist er við að ákært verði fyrir brot á 218. grein hegningarlaganna.
Fórnarlamb mannanna, maður á líkum aldri, var skilið eftir með ýmsa áverka, m.a. stungusár, á berangri í Hlíðarfjalli eftir árásina sem átti sér stað við heitan pott í samkvæmi á Akureyri um þarsíðustu helgi.
Hinir grunuðu hafa báðir margoft komið við sögu lögreglu.