Menn kjósa ekki rudda eins og mig!

Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar aftók með öllu að hann muni bjóða sig fram í embætti forseta Íslands á næsta ári. Ástæðan væri einföld; fólk kysi ekki rudda eins og hann í svona embætti.

Þessi ummæli lét Kári fjúka undir lok viðtals síns við Sigmar Guðmundsson í morgunþætti Rásar 2 í morgun, en Kári sem er 66 ára hefur oftsinnis verið nefndur sem álitlegt forsetaefni í umræðu um arftaka Ólafs Ragnars Grímssonar á Bessastöðum.

Um ástæðu þess að Kári vildi ekki bjóða sig fram nefndi hann einnig að honum liði vel í því starfi sem hann sinnti í Vatnsmýrinni - og meðan mönnum sýndist hann gera eitthvað gagn þar vildi hann vera þar áfram. Á hitt bæri svo að líta að hann vildi alls ekki verða eins og Ólafur Ragnar Grímsson.

Aðspurður hvort hann héldi að Ólafur Ragnar myndi bjóða sig aftur fram svaraði Kári því til að honum væri nokk sama.