Már Guðmundsson Seðlabankastjóri var gestur í Þjóðbraut í kvöld. Hann svaraði spurningum um hátt gengi íslensku krónunnar á þann veg að þar beri ferðaþjónustan mesta ábyrgð. Ekki peningamálastefnan.
Hann spurði hverjir ákveða að hingað fljúgi fjöldi flugfélaga, þrátt fyrir yfirsettan flugvöll og flugstöð. Hann sagði samt haldið áfram og svo virðist sem engar afleiðingar verði og svo sé sagt að Seðlabankinn eigi að bjarga því sem aflaga fer. Már sagði bankann ekki hafa tæki til þess, kannski í skamman tíma, en annars ekki.
Hann sagði að sér virtist menn vera að tapa sér í atvinnugreininni. Þar sé hægt að draga úr og með því vinna gegn hækkun gengis krónunnar.
Vaxtamunur milli Íslands og nágrannalandanna minnka, en hann sé eigi að síður mikill. Már segir vexti eiga eftir að hækka erlendis, til dæmis í Bretlandi, og það á morgun.