Meningókokkar á móti íslenskra skáta

Fréttir hafa borist frá Skotlandi og Svíþjóð um nokkra einstaklinga sem sóttu skátamótið Jamboree 2015 í Japan og veiktust alvarlega af meningókokkum. Héðan frá Íslandi voru rúmlega 80 börn sem sóttu þetta sama skátamót.

Íslensku börnin sem fóru á mótið voru einkum af höfuðborgarsvæðinu og frá Akureyri, en engin alvarleg veikinda hafa verið tilkynnt meðal þeirra að því er fram kemur á vef Landlæknisembættisins í dag.

Þar segir að meningókokkar séu bakteríur sem geti valdið alvarlegri blóðsýkingu og/eða heilahimnubólgu. Ólíklegt sé að þessi sýking komi upp á meðal íslensku þátttakendanna því meira en vika sé liðin frá því að mótinu lauk en líkur á sýkingu séu mestar innan viku frá smiti.

\"Allir íslensku þátttakendurnir á mótinu og aðstandendur þeirra hafa fengið upplýsingar um veikindin og verið hvattir til að leita læknis ef þeir fá hita á næstu dögum. Læknar heilsugæslunnar og sjúkrahúsa hafa einnig verið beðnir um að vera á varðbergi ef veikir einstaklingar sem voru á skátamótinu leita til þeirra,\" segir á vef embættisins.

Á Íslandi er bólusett gegn meningókokkum C en sú bólusetning veitir ekki vörn gegn sýkingum af völdum meningókokkum W, en það er sú gerð bakteríunnar sem fannst í Japan. \"Ekki er ástæða á þessari stundu til að skoða sérstaklega einkennalausa einstaklinga sem voru á skátamótinu eða gefa þeim fyrirbyggjandi sýklalyf,\" segir enn fremur á vef embættisins.