Mengun yfir mörkum í reykjavík í dag

Styrkur svifryks (PM10) mun að líkindum fara yfir sólarhrings-heilsuverndarmörk í dag 31. mars í Reykjavík.

Mörkin eru 50 µg/m3. Hæsta gildi mældist við Grensásveg, 214, sem er óvenju hátt.

Í dag er þó nokkur vindur, götur þurrar og engar líkur á úrkomu. Gert er ráð fyrir vætu í nótt og fyrramálið og hæglætisveðri eftir hádegi á morgun sem ætti þá að draga úr svifryksmengun.