Meltingin skoðuð í bak og fyrir

Í sjónvarpsþættinum Heilsutímanum á Hringbraut í kvöld er meltingin í hávegum höfð en þar er meðal annars rætt við Rakel Fleckenstein Björnsdóttur þýðanda metsölubókarinnar Þarmar með sjarma.
 
Rakel hefur áhugaverða sögu að segja frá sjálfri sér og hvernig henni tókst að ná heilsunni aftur með því að huga betur að meltingunni.
 

Í þætti kvöldsins er einnig rætt við Birnu Ásbjörnsdóttur sem hefur starfað í um 20 ár við næringarráðgjöf og fræðslu, hérlendis og erlendis. Birna er að ljúka meistaragráðu í næringarlæknisfræði frá Surreyháskóla og stundar meistaranám við Oxfordháskóla í gagnreyndum heilbrigðisfræðum. Hún gerði nýlega stóra rannsókn á hvort góðir gerlar (probiotics) geti gangast gegn sýkingum.

Þá verður fjallað um Hressleika í þættinum í kvöld, en árlega heldur líkamsræktarstöðin Hress í Hafnarfirði mót með þessu nafni, en tilgangurinn er að skapa frábæra stemmningu á meðal iðkenda, gera sér glaðan dag og safna í leiðinni fyrir mikilvæg málefni. Í ár var ákveðið að styrkja unga fjölskyldu sem gengur í gegnum lífsins ólgusjó en heimilisfaðirinn Kristján greindist nýlega með krabbamein í höfði í annað sinn og þetta ferli reynir augljóslega mikið á fjölskylduna og aðstandendur hennar. Eiginkona hans, Kristín Þórisdóttir er tekin tali af þesu tilefni.

Loks verður fjallað um Klíníkina í Ármúla sem var opnuð fyrir örfáum vikum. Þetta er einkarekin læknastöð með flottum aðbúnaði og þarna koma saman alls konar þjónustuaðilar í heilbrigðiskerfinu. Við kíktum í heimsókn og sáum m.a. hvernig þeim tókst til að breyta Hótel Íslandi í flottar læknastofur.

Heilsutíminn er frumsýndur klukkan 20:00 í kvöld og endursýndur strax klukkan 22:00.