Meistaraspjall með valdísi óskarsdóttur

Meistaraspjall með Valdísi Óskarsdóttur klippara er einn helsti viðburður hátíðarinnar Northern Wave Film Festival sem stendur um helgina í Bíó Paradís. Hann verður haldinn í menningarmiðstöðinni Frystiklefanum á Rifi í Snæfellsbæ föstudaginn 26. Október klukkan 18:00.

 Nanna Frank Rasmussen, formaður Samtaka danskra kvikmyndagagnrýnenda, leiðir spjallið.

Í tilkynningu segir: „Hátíðin er aflvél sköpunar og menningarlegs vaxtar. Hátíðin hefur verið mótsstaður íslenskra og alþjóðlegra avant-garde kvikmyndagerðarmanna í yfir áratug og unnið sér sess sem hátíð sem íslenski kvikmyndaiðnaðurinn hefur getað vísað til um heim allan“.

 \"Meet the Masters\"

Helst er vakin athygli á Wom@rts og \"Meet the Masters\". Wom@rts verkefnið og tengslanetið hefur að markmiði að varpa ljósi á framlag kvenna til evrópskar menningararfleiðar og menningarlegrar fjölbreytni, ásamt því að kljást við kynjamisrétti með því að styðja þátttöku þeirra og sýnileika í menningu og listum á þverfaglegum vettvangi.

Undir yfirskriftinni „Meet the Masters” eru skipulagðir tveir viðburðir hverju ári, í ár, á næsta ári og árið 2020., amtals 54 viðburði. Meðal annars verður um að ræðavinnusmiðju og meistaraspjalli fyrir allt að 30 listakonur, ásamt ráðstefnu fyrir fjölbreyttan hóp kvenna og karla úr hópi listamanna, menningarfrömuða og áhrifaaðila, alls um 100 manns.

 Valdís Óskarsdóttir er fulltrúi  Wom@rts á Íslandi í samtarfi við Samtök kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi á Norðurlöndunum (WIFT Nordic). Valdís mun ræða um vegferð sína í kvikmyndagerð og feril sinn sem klippari og afkastamikill kvikmyndagerðarkona. Hún er m.a. þekkt fyrir að hafa klippt dönsku kmvikmynda Festen (1998), Sveitabrúðkaup (2008) og Eternal Sunshine of the Spotless Mind (2004), en fyrir þá mynd hlaut hún BAFTA-verðlaunin árið 2005.

Seinast leikstýrði hún Kóngavegi 7 (2010) og vann EDDU-verðlaunin fyrir klippingu á þáttunum Fangar (2018).