Meirihluti Samfylkingar, Pírata og VG heldur velli með glæsibrag í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Gallups. Þjóðarpúls frá 4. apríl til 3. maí mælir núverandi meirihluta með 13 borgarfulltrúa af 23. Meirihlutinn heldur því örugglega.
Samfylking fengi 7 menn kjörna, Píratar 4 en þeir eru í mikilli sókn og VG næði 2 borgarfulltrúum. Samkvæmt þessu situr meirihlutinn óhaggaður.
Sjálfstæðisflokkur fengi 7 menn kjörna og heldur sömu fylgisprósentu og í kosningunum fyrir fjórum árum sem var lakasti árangur flokksins í sögunni í höfuðborginni.
Viðreisn bætir við sig fylgi frá síðustu könnun, fengi 8,1% og 2 menn kjörna.
Miðflokkurinn tapar hins vegar fylgi frá síðustu könnun en héldi einum manni.
Önnur framboð koma ekki inn manni.
Meirihlutinn í reykjavík fastur í sessi
Fleiri fréttir
Nýjast