Meirihlutinn í borginni heldur velli

Samfylkingin, VG og Píratar myndu fá samtals 12 menn kjörna ef gengið væri til kosninga nú í borginni samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem birt var í Fréttablaðinu í morgun og lesa má um á frettabladid.is. Það merkir að meirihluti núverandi valdaflokka heldur.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist aftur á móti stærstur flokkanna i borginni með ríflega 35 prósenta fylgi sem myndi færa honum níu borgarfulltrúa, tveimur fleiri en Samfylkingin sem fengi næstflesta fulltrúa rösklega og 27 prósenta fylgi. Hvorki Framsókn né Björt framtíð næðu inn manni, en Miðflokkurinn fengi aftur á móti einn fulltrúa í ktrafti ríflega 6 prósenta fylgis. VG er með 12 prósenta fylgi og hreppti þrjá fulltrúa og Píratar með næstum 9 prósenta fylgi sem merkti tvo menn kjörna.

Af þeim flokkum sem banka hvað ákafast á borgarhliðið má helst nefna Viðreisn sem mælist með 4,2 prósent og litlu aftar í röðinni er Framsókn með 3,4 prósent. Flokkur fólksins mælist með tæp 2 prósent. Björt framtíð mælist með innan við 1 prósent.

Hringt var í 1322 manns með lögheimili í borginni og náðist í 800 dagana 26. og 27. febrúar. Svarhlutfall var rösklega 60 prósent.