Núverandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur heldur velli í kosningunum á laugardaginn, en þó með minnihluta atkvæða á bak við sig. Þetta sýnir könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið sem gerð var 17. til 21. maí. Sósíalistaflokkurinn og Framsóknarflokkurinn mælast nú með einn fulltrúa hvor, en Flokkur fólksins engan sem er breyting frá síðustu könnun sem birt var 27. apríl.
Samkvæmt könnuninni fá átta framboðslistar menn kjörna í borgarstjórn. Samfylkingin er stærst með 31,8% fylgi og 8 fulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn er í öðru sæti með 26,3% sem gefur 7 fulltrúa. Píratar eru með 8% og fengju 2 fulltrúa. Vinstri hreyfingin – grænt framboð er með svipað fylgi, 7,4% og fengi einnig 2 fulltrúa. Meirihlutaflokkarnir, Samfylkingin, Píratar og VG, eru með 12 fulltrúa af 23 í borgarstjórn. Á bak við flokkana er þó ekki meirihluti kjósenda; samanlagt fylgi þeirra er 47,2%.