Meirihlutinn hélt á akureyri

Meirihlutinn hélt á Akureyri. Framsókn, L-listinn og Samfylkingin halda 6 fulltrúum af 11 í höfuðstað norðursins.

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut rúmlega 22 prósent og L-listinn rúm 21 prósent. Samfylkingin fékk 17,5 prósent og Framsóknarflokkurinn rétt yfir 17 prósent kosningu. Vinstri græn hlutu 9,4 prósent, Miðflokkurinn 8,3 prósent og Píratar 4,3 prósent.

Sjálfstæðisflokkurinn fær þrjá fulltrúa, Framsóknarflokkurinn tvo, Samfylkingin tvo og L-listinn tvo. Miðflokkurinn og Vinstri græn fá einn fulltrúa hvor.