Meirihlutinn dalar en heldur þó velli

Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur heldur velli og fengi 13 af 23 borgarfulltrúum í stækkaðri borgarstjórn ef niðurstöður kosninganna í vor eru í takti við niðurstöður skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið og birt er í dag.
 
Samkvæmt könnuninni minnkar fylgi meirihlutans þó töluvert. Það skýrist einkum af fylgishruni Bjartrar framtíðar, sem er nánast horfin af sjóndeildarhring kjósenda ef marka má þessa könnun, og merkjanlegri niðursveiflu í fylgi Samfylkingar.

 

Það sem tryggir meirihlutanum framhaldslíf, samkvæmt könnuninni, er svo fylgisaukning Vinstri grænna og Pírata. Þriggja flokka meirihluti Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna nýtur samkvæmt þessu stuðnings 52.3 prósenta Reykvíkinga, en núverand, fjögurra flokka meirihluti fékk 61,7 prósent atkvæða í kosningunum 2014.

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig nokkru fylgi frá síðustu kosningum, 3,4 prósentustigum, en á móti kemur að Framsókn tapar miklu fylgi og kemur ekki manni að ef þetta gengur eftir, ekki frekar en Miðflokkurinn. VIðreisn og Flokkur fólksins munu þó að líkindum koma manni að, þótt það standi tæpt með síðarnefnda flokkinn. 

Niðurstöðurnar eru annars þessar: 29,1 prósent segjast styðja Sjálfstæðisflokkinn, sem fengi átta menn kjörna, 25,7 prósent lýsa stuðningi við Samfylkinguna, sem fengi þá 7 borgarfulltrúa, Píratar og Vinstri græn njóta jafn mikils fylgis, 13.3 prósent segjast styðja hvorn flokk, sem gæfi þeim þrjá fulltrúa hvorum. 6,4 prósent styðja Viðreisn, sem gefur einn mann, og 4,9 prósent lýsa stuðningi við Flokk fólksins. 2,9 prósent styðja Framsókn og flugvallarvini, 2,4 prósent Bjarta framtíð og 1,1 prósent nefnir Miðflokkinn.

Könnunin var gerð dagana 4. til 31. janúar. Úrtakið var 2.021