Meirihlutinn á akureyri er kolfallinn

Meirihluti Framsóknarflokksins, Samfylkingar og L-listans á Akureyri er kolfallinn samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Fréttablaðsins.

Núverandi meirihlutaflokkar fengju aðeins fjóra fulltrúa af 11. Sjálfstæðismenn fengju nú sömuleiðis fjóra menn kjörna og L-listinn fengi tvo. Framsókn, Píratar, Samfylkingin og Miðflokkurinn fengju hvort um sig einn fulltrúa.

Miðflokkurinn, sem hefur ekki kynnt neinn lista á Akureyri, en myndi samt myndi fá tæplega níu prósent.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi eða 29 prósent. L-listinn fengi 21 prósent, Framsóknarflokkurinn 10 prósent og Samfylkingin tæp 10 prósent. VG mælist með 11 prósent, Miðflokkurinn tæplega 9 prósent og Píratar rúm sjö.

Könnunin varð gerð 2. maí.