Yfir 70% þátttakenda í nýjustu skoðanakönnuninni á hringbraut.is segjast vera hlynnt hugmyndum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um að nota teikningar Guðjóns Samúelssonar til að byggja við húsakost Alþingis í Kvosinni norðan Tjarnarinnar. Teikningar Guðjóns eru frá því hann var að hefja arkitektaferil sinn, en hlutur Guðjóns í íslenskri byggingarsögu er ríkur og mikill, enda hannaði hann fjölda stórbygginga sem setja sterkan svip á bæjarfélög víða um land.
Vel á fimmta hundrað manns tók þátt í þessari könnun á hringbnraut.is sem er óformleg netkönnun og styðst ekki við vísindalega aðferðafræði.
Könnunin ætti þó að gefa forsætisráðherra byr í seglin en viðbrögð margra fræðimanna við hugmyndum hans um að reisa viðbyggingu Alþingis eftir teikningum Guðjóns á 100 ára afmæli fullveldis Íslendinga eftir 3 ár hafa ekki verið góð. Í þingsályktunartillögunni sem ríkisstjórnin hefur raunað samþykkt um þetta efni kemur fram að viðeigandi sé að á afmælinu verði lokið við áform um uppbyggingu á Alþingisreitnum sem ráðist hefði verið í fullveldisárið 1918 ef fjárhagur landsins og aðstæður hefðu leyft. „Það fer þar af leiðandi vel á því að nú, þegar Íslendingar hafa í heila öld notið þeirra framfara sem fylgdu í kjölfar fullveldis verði lokið við byggingaráformin,“ segir í ályktuninni.