Meirihluti vill hámark á setu forseta

Nærfellt sex af hverjum tíu vilja að sett verði mörk á það hversu mörg kjörtímabil sama manneskja geti gegnt embætti forseta Íslands. Tæplega helmingur þeirra vill að setan takmarkist við 2 kjörtímabil.
 
Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem fyrirtækið Maskína hefur gert fyrir Morguntúgáfuna á Rás 2 og greint var frá í morgun. Þar kemur fram að 17 prósent vilja ekki setja mörk. 
 

Tæplega helmingur þátttakenda í könnuninni telur rétt að forseti sitji í embætti í þrjú kjörtímabil eða færri. Ríflegur fjórðungur vill setja mörkin við tvö kjörtímabil og rúm 20 prósent vill þrjú kjörtímabil að hámarki.

Flestir þeirra sem á annað borð vilja að fjöldi kjörtímabila verði takmarkaður telja rétt að ein og sama manneskjan sitji í embætti í tvö kjörtímabil að hámarki eða tæp 45 prósent. Tæp 37 prósent vilja að hámarkið miðist við þrjú tímabil. Þannig telja rúmlega 80 prósent þeirra sem vilja að lengd setu forseta verði sett mörk rétt að forseti sitji í þrjú kjörtímabil eða færri. Einn af hverjum tíu er hlynntur því að forseti sitji fjögur kjörtímabil.

Konur eru líklegri til að styðja að fjölda kjörtímabila verði sett mörk og sömuleiðis háskólamenntaðir. Meðal kjósenda Framsóknarflokksins eru fleiri andvígir því en hlynntir að takmörk verði sett á kjörtímabil. Meirihluti kjósenda Samfylkingarinnar, Vinstri-grænna og Pírata eru hlynntir því að mörk verði sett.

Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur sagði á RÚV í morgun að yfirleitt séu sett takmörk á það hversu mörg kjörtímabil forseti megi sitja í embætti í löndum þar sem forsetaembættið sé valdamikið. Ekki sé algengt að slík mörk séu í þingbundnum ríkjum þar sem forsetaembættið sé valdaminna. Á síðustu árum hafi vægi íslenska forsetaembættisins þó vaxið þegar forseti beytti neitunarvaldi.

Fimmta kjörtímabili Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands lýkur á næsta ári. Þá hefur hann setið í embætti í tvo áratugi. Forsetinn hefur enn ekki gefið upp hvort hann hyggist bjóða sig fram til áframhaldandi setu.

Könnunin var framkvæmd dagana 24.júlí til 13.ágúst og voru svarendur 751.