Rúmur helmingur þeirra sem tók afstöðu segist vilja sjá aðskilnað ríkis og kirkju. Áhuginn á aðskilnaðinum er mun meiri á meðal yngra fólks, en um það bil tveir af hverjum þremur á aldrinum 18 til 49 ára styðja aðskilnað ríkis og kirkju.
Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, en af henni má ráða að töluverður munur er á afstöðunni til Þjóðkirkjunnar eftir aldri fólks. Einungis 43 af hundraði fólks eldra en 50 ára styður aðskilnaðinn sem er þvert á það sem yngra fólkið vill, svo sem fyrr segir.
Davíð Þór Jónsson, héraðsprestur á Austurlandi kveðst í smatali við blaðið vera hissa á því að fleiri vilji ekki aðskilnað ríkis og kirkju: \"Af umræðunni að dæma hefði ég haldið að það væri stærri meirihluti,\" segir hann.