Meirihluti umsagna neikvæðar

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur farið yfir umsagnir vegna fyrirhugaðrar upptöku veggjalda samkvæmt fyrirlagðri samgönguáætlun. Björn Leví greindi frá því í stöðuuppfærslu á Facebook í dag að hann væri búinn að fara yfir 644 umsagnir af alls 773 og að tölfræðin fyrir þær umsagnir sem hann væri búinn að fara yfir væri á þann veg að 93 prósent séu andvígir og 7 prósent hlynntir veggjaldaáætluninni. Eyjan.DV.is greinir frá.

Umhverfis – og samgöngunefnd Alþingis hefur lagt fram drög að nefndaráliti vegna samgönguáætlunar til næstu 15 ára. Þar er kveðið á um upptöku vegtolla sem yrðu innheimtir á stofnbrautum frá Reykjavík og í öllum jarðgöngum landsins í þeim tilgangi að auka fjármagn til samgöngumála og flýta þar með fyrir brýnum framkvæmdum og bæta við nýjum ef þarf. Eins og áður hefur verið greint frá hefur afgreiðslu samgönguáætlunarinnar verið frestað til 1. febrúar á þessu ári.

Björn Leví hafði gagnrýnt áfergju ríkisstjórnarinnar í að hraða samgönguáætluninni í gegnum þingið en lýsti svo yfir ánægju með frestunina. Hann taldi veggjaldaáætlunina vera mál af þeirri stærðargráðu að fólk ætti almennt að hafa meira um það að segja. Í grein í Morgunblaðinu þann 20. desember sl. hvatti hann fólk því til að senda inn umsagnir sínar um frumvarpið. Fólk brást vel við því og segir Björn Leví í stöðuuppfærslunni að aldrei hafi borist fleiri umsagnir frá almenningi vegna eins þingmáls.

Í grein sinni í Morgunblaðinu benti Björn Leví á að aðrar leiðir væru færar til að ráðast í uppbyggingu samgöngukerfisins, t.d. með því að lækka skatta aðeins minna.