Þótt munurinn sé ekki ýkja mikill er þetta mikil og skjót breyting frá því sem áður var. Í sams konar könnun sem gerð var í fyrra voru aðeins 31% aðspurðra fylgjandi aðild, en 50% voru henni mótfallin.
Að því er fram kemur í frétt RÚV um könnunina i morgun var hún gerð skömmu eftir að bæði Miðflokkurinn og Kristilegir demókratar lýstu stuðningi við aðild, en áður höfðu bæði Þjóðarflokkurinn og Mið-hægriflokkurinn (Moderatarna) lýst sömu afstöðu.
Stuðningurinn við aðild reynist enda mestur meðal kjósenda þessara flokka, og hjá Svíþjóðardemókrötum. 54% af kjósendum þeirra eru á því að Svíar eigi að ganga í Atlantshafsbandalagið, þótt flokkslínan sé á hinn veginn. Hjá þeim sem kjósa Sósíaldemókrata eru 52% andvíg Nató-aðild en 30% fylgjandi.
Haft er eftir Ulf Bjereld, prófessor í stjórnmálafræði og sósíaldemókrata í RÚV í morgun að menn þurfi ekki að vera sérlega hissa á þessari miklu sveiflu. Andstaðan við Nató-aðild hafi farið ört minnkandi á síðustu tveimur árum. Telur hann tvennt vega þar þyngst. Annars vegar umræðuna um varnarmátt Svíþjóðar í kjölfar þess að Sverker Göranson, æðsti yfirmaður hersins, lýsti því yfir að Svíar gætu aðeins varist í hér um bil viku. Og hins vegar það sem fólk upplifi æ meira sem ógnun úr austri, vegna vaxandi hernaðarbrölts Rússa á norðurslóðum síðustu misseri.