38% telja að of margir ferðamenn séu í miðborginni

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru jákvæðari nú í garð ferðamanna og ferðaþjónustu samanborið við síðustu tvö ár. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir Höfuðborgarstofu. Í svörum alls staðar á höfuðborgarsvæðinu eru jákvæðar hliðar ferðaþjónustu taldar vega þyngra en neikvæðar hliðar hennar. Karlmenn eru heldur jákvæðari en konur gagnvart ferðamönnum.

Í könnuninni er spurt út í ýmsa þætti svo sem ónæði, heimagistingu, gestrisni, fjölda ferðamanna í miðborginni og fleira. Í niðurstöðunum kemur meðal annars fram að íbúar í miðborg Reykjavíkur verði meira varir við ónæði af hálfu heimagistingar við heimili sitt en íbúar annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir það eru íbúar miðborgarinnar almennt jákvæðir í garð ferðamanna þegar á heildina er litið.

Meirihluti svarenda telur fjölda ferðamanna í miðborg Reykjavíkur vera hæfilegan og eru fleiri þeirrar skoðunar nú en á síðustu árum. Sé einungis litið á svör íbúa miðborgarinnar telja rúmlega 70%  að fjöldi ferðamanna sé hæfilegur yfir vetrarmánuðina en tæplega 62% telja hann hæfilegan yfir sumarmánuðina. Rúmlega 36% íbúa miðborgarinnar telja að fjöldinn yfir sumarmánuðina sé of mikill eða allt of mikill en á móti telja á milli 13% og 14% að hann sé of eða allt of lítill yfir vetrarmánuðina.

Meirihluti svarenda, eða tæplega 58%, telur að verslun á höfuðborgarsvæðinu hafi eflst með auknum fjölda ferðamanna en færri eru þó þeirrar skoðunar nú en áður. Á milli 64% og 65% telja að framboð afþreyingar á höfuðborgarsvæðinu hafi aukist með auknum fjölda ferðamanna og rétt yfir 40% telja að lífsgæði í sínu nærumhverfi hafi batnað nokkuð eða mikið með auknum fjölda ferðamanna. Rúmlega  53% telja íbúa á höfuðborgarsvæðinu mjög eða fremur gestrisna gagnvart erlendum ferðamönnum en tæplega 8% telja að íbúar séu fremur eða mjög ógestrisnir.

Könnunin lögð fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu dagana 3. til 28. maí. Tilgangurinn er að fylgjast með þolmörkum íbúa gagnvart ferðamönnum og ferðaþjónustu og eru niðurstöðurnar taldar endurspegla viðhorf íbúa höfuðborgarsvæðisins ágætlega. Svarendur voru alls 2.392.