Meirihluti landsmanna vill ekki leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum samkvæmt nýrri könnun MMR.
Tæplega 74% svarenda kváðust andvíg því að heimila sölu á sterku áfengi (meira en 22% áfengisinnihald) í matvöruverslunum, þar af rúm 61% mjög andvíg. Minni andstaða var gegn sölu á léttu áfengi og bjór (minna en 22% áfengisinnihald) en tæp 55% svarenda sögðust andvíg sölu á léttu áfengi og bjór í matvöruverslunum, þar af tæplega 43% mjög andvíg. Stuðningur við leyfi til sölu var rúmlega 15% við sölu á sterku áfengi og tæplega 36% við sölu á léttu áfengi og bjór.
Stuðningur við leyfi til sölu á léttu áfengi og bjór í matvöruverslunum hefur aukist lítillega frá skoðanakönnun MMR sem framkvæmd var í febrúar 2017 eða um 3,1%. Andstaða gegn slíkri sölu hefur að sama skapi lækkað um 2%. Nær engar breytingar hafa átt sér stað á afstöðu landsmanna gagnvart sölu á sterku áfengi.
Andstaða gegn sölu á sterku áfengi í matvöruverslunum jókst með auknum aldri. Af yngsta aldurshópnum (18-29 ára) kváðust 56% vera andvíg sölu á sterku áfengi, samanborið við 92% í elsta aldurshópnum (68 ára og eldri). Andstaða reyndist nokkuð minni hjá körlum (67%) heldur en konum (81%) og lýstu karlar (20%) frekar stuðningi við leyfi til sölu á sterku áfengi heldur en konur (11%). Þá bar minna á andstöðu á meðal íbúa höfuðborgarsvæðisins (72%) heldur en þeirra sem búa á landsbyggðinni (77%). Lítill munur var á afstöðu með tilliti til menntunar svarenda.
Nokkur munur var á afstöðu svarenda sé horft til stjórnmálaskoðana. Stuðningsfólk Framsóknarflokks var nær algjörlega á móti sölu á sterku áfengi í matvöruverslunum (96%) en þar af var stór meirihluti mjög andvígur (91%). Mikla andstöðu var einnig að finna hjá stuðningsfólki Flokks fólksins (85%), Vinstri grænna (85%) og Samfylkingar (82%). Mestan stuðning við leyfi til sölu á sterku áfengi í matvöruverslunum mátti finna hjá stuðningsfólki Viðreisnar (36%), Pírata (38%) og Sjálfstæðisflokks (22%).