Meirihluti breta vill fara úr esb

Fleiri Bretar vilja segja sig úr Evrópusambandinu en vilja vera áfram í sambandinu að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun sem gerð var 3. og 4. september og birt var í Mail on Sunday í morgun.
 
Þetta er í fyrsta skipti sem andstæðingar Evrópusambandsaðildar mælast fleiri en stuðningsmenn aðildar á Bretlandseyjum. Fyrirhugað er að Bretar ákveði framtíð sína innan ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu 2017, en það var meðal kosningaloforða Davids Cameron, forsætisráðherra fyrir síðustu þingkosningar sem Íhaldsflokkurinn vann með afgerandi hætti. Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðsluna verður að öllum líkindum tekið fyrir í neðri deild breska þingsins á mánudag.
 

Samkvæmt Mail on Sunday myndu 43% Breta kjósa að segja sig úr sambandinu yrði gengið til atkvæðagreiðslunnar nú. 40% vilja vera áfram í ESB og 17% voru óákveðin. Skekkjumörk eru 2%.

Nýja könnunin, sem gerð var af markaðsfyrirtækinu Survation sýnir mikla fylgissveiflu yfir til ESB-andstæðinga en könnun Survation frá því í júlí sýndu allt aðra niðurstöðu, þá vildu 45% vera áfram í ESB en 37% segja sig úr sambandinu.

Þessi umsnúningur gerist þrátt fyrir ákaft ákall forkólfa í bresku viðskipta- og atvinnulífi sem langlfestir geta ekki hugsað þá hugsun til enda að Bretar segi skilið við Evrópusambandið, en þeir halda því fram að það myndi gera efnahagsumhverfi Breta ósamkeppnishæft við þjóðir á meginlandi Evrópu og í raun færa Bretland áratugi aftur í tímann í þessu tilliti.