Meirihluti andvígur þriðja orkupakkanum - stuðningur eykst með aukinni vitneskju

Tæpur helmingur þeirra sem taka afstöðu, eða 48,7 prósent, er andvígur því að þriðji orkupakkinn verði samþykktur á Alþingi. 29,6 prósent eru hlynnt því að hann verði samþykktur og 21,7 prósent eru hlutlaus. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið.

Um er að ræða svipaðar niðurstöður og fengust úr könnun Zenter rannsókna fyrir Fréttablaðið í desember á síðasta ári.

Fram kemur að ef svör allra séu skoðuð komi í ljós að stærsti hópurinn, eða 36,3 prósent, segist ekki vita hvort hann sé hlynntur eða andvígur samþykkt þriðja orkupakkans. Þegar öll svör voru tekin saman reyndust 30,5 prósent andvíg samþykkt orkupakkans, 18,5 prósent hlynnt, 13,6 prósent hlutlaus og rúmt eitt prósent vildi ekki svara.

Stuðningur eykst eftir því sem fólk kynnir sér málið

Í könnuninni var spurt að því hversu vel eða illa fólk hefði kynnt sér þriðja orkupakkann. 32,1 prósent þeirra sem svöruðu sögðust ekki hafa kynnt sér hann og 26,5 prósent sögðust hafa kynnt sér hann illa. 22,2 prósent töldu sig hafa kynnt sér orkupakkann vel og 19,2 prósent hvorki vel né illa.

Samkvæmt könnuninni eykst stuðningur við samþykkt þriðja orkupakkans eftir því sem fólk hefur kynnt sér málið betur. 46 prósent þeirra sem hafa kynnt sér málið vel eru hlynnt samþykkt, 26 prósent þeirra sem hvorki hafa kynnt sér málið vel né illa, 19 prósent þeirra sem hafa kynnt sér það illa og 12 prósent þeirra sem ekki hafa kynnt sér málið.

Um helmingur þeirra sem hafa kynnt sér málið vel og þeirra sem hafa hvorki kynnt sér það vel né illa er andvígur samþykkt þriðja orkupakkans. 46 prósent þeirra sem hafa kynnt sér málið illa og 45 prósent þeirra sem ekki hafa kynnt sér það eru andvíg samþykkt pakkans.