Um 70% svarenda sögðust vera ánægð með aðgerðaáætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Hins vegar sögðust einungis um 22% hafa kynnt sér áætlunina vel.
Greint var frá niðurstöðunum í hádegisfréttum RÚV.
44% sögðust lítið eða ekkert hafa kynnt sér aðgerðaáætlun stjórnvalda, sem kynnt var á blaðamannafundi í Hörpu 8. júní síðastliðinn. Um þriðjungur sagðist hvorki hafa kynnt sér áætlunina vel né illa. Karlar höfðu kynnt sér áætlunina betur en konur sem og eldra fólk í samanburði við það yngra. Háskólamenntaðir voru sömuleiðis líklegri til að hafa kynnt sér áætlunina vel en þeir sem höfðu minni menntun.
Samkvæmt Þjóðarpúlsinum eru íbúar Reykjavíkur almennt ánægðari með áætlunina en íbúar landsbyggðarinnar. Stuðningsmenn stjórnarflokkanna eru jafnframt ánægðari en þeir sem myndu kjósa aðra flokka í næstu Alþingiskosningum, en 94% kjósenda Sjálfstæðisflokksins og 90% kjósenda Sjálfstæðisflokksins voru ánægð með áætlunina. Ánægjan var minnst meðal kjósenda Vinstri grænna, 49%.
Könnunin var gerð á netinu og var svarhlutfall 55,5%. 1431 manns var í úrtaki.