„meiriháttar plagg“ í smíðum

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveitar­stjórn­ar­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að það sem hefur verið til umræðu í við­ræðum stjórn­valda við aðila vinnu­mark­að­ar­ins, og er ætlað að liðka fyrir gerð kjarasamn­inga, muni skila Íslandi á annan og betri stað í þróun sam­fé­lags­ins. Kjarninn greinir frá.

Þetta er meðal þess sem Sig­urður Ingi segir í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í frétta- og umræðu­þætt­inum 21 á Hring­braut í kvöld.

Þar segir hann einnig að aðkoma rík­is­ins að gerð kjara­samn­inga sé áskorun um að geta komið til móts við ólíka aðila þannig að markmiðið um að verja þau lífskjör sem Íslend­ingar hafi náð á und­an­förnum árum náist, auk þess að byggja viðbótargrunn að sókn til nýrra tíma. „Þetta eru fjöl­margir þættir sem við erum að taka á. Ég held að það megi alveg tala um það sem slíkt að þetta sé meiri­háttar plagg sem við séum að smíða.“

Brot úr viðtalinu má sjá hér:

Meg­in­línur kjara­­­samn­inga á milli VR, Eflingar, VLFA, VLFG, LÍV og Framsýnar og Sam­­­taka atvinn­u­lífs­ins voru samþykktar skömmu eftir miðnætti. Samningunum er ætlað að standa til 1. nóv­­em­ber 2022. ­Sam­komu­lagið er þó með fyr­ir­vara um aðkomu stjórn­­­­­valda að samn­ing­um, og sam­­­þykki samninganefnda þeirra félaga sem eiga aðild að sam­komu­lag­inu. Um þá aðkomu hefur verið fundað í allan dag.

Aðspurður hvort að í þeirri aðkomu felist grund­vall­ar­breyt­ing á þeim kerfum sem verið hafa við lýði í þeim mála­flokkum sem verið sé að ræða um segir Sigurður Ingi að hann telji svo vera. „Án þess að fara of djúpt í það þá held ég að við getum vænst þess að gangi þetta allt eftir sem við höfum verið í sam­tali um þá séum við komin á annan stað í þróun sam­fé­lags­ins í betri átt.“

Nánar er rætt við Sigurð Inga í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.