Meiriháttar frjósemi fjár

Frjósemi á bænum Efri-Fitjum í Víðidal í Húnaþingi vestra hefur verið ótrúlega mikil í sauðburðinum í vor og það sem af er sumri, segir í frétt nýjasta einstaks Bændablaðsins. Þar segir að á séu 880 fjár en 22 af þeim voru fjórlembur, fimm voru fimmlembur og 179 voru þrílembur.

Bændurnir segjast ekki muna eftir öðru eins.

Gréta Brimrún Karlsdóttir er sauðfjárbóndi á bænum ásamt manni sínum Gunnari Þorgeirssyni. Þau reka dágott fjárbú á EfriFitjum. Auk þess að vera með sauðfé eru þau að rækta hross með góðum árangri.