Meiri möguleikar fyrir fjölskyldugrafreiti

 Kröfur fólks nú til dags til útfara sinna nánustu og sinnar eigin útfarar er umfjöllunarefni sem rætt verður á opnum fundi á morgun. Breytt samfélagsgerð kallar á nýja nálgun og erindi um það mun Sigrún Óskarsdóttir, guðfræðingur hjá Útfararstofu kirkjugarðanna flytja og varpar ljósi á ólíkar þarfir aðstandenda við kveðjustund.

Sífellt fleiri skrifa niður óskir sínar fyrir eftirlifandi aðstandendur og ræða andlát sitt. Margar slíkar óskir eru geymdar í lokuðu hólfi hjá Útfararstofu kirkjugarðanna, segir Sigrún - og bunkinn hleðst upp - en þar er mikilvægast að komi fram hvar fólk vilji láta jarða sig og líka hvernig, það er í kistu eða duftreit - eða annað. Sigrún segir þá staðreynd að fleiri en nokkru sinni fyrr vilji láta brenna sig sé ekki tilkomin vegna fjárhagslegra mála enda þarf fólk alltaf að kaupa kistu hvort eð er og svo líka duftker. Með duftreitum má nefnilega jarða fleiri saman og eins og áður þekktist, fleiri en eina kynslóð á sama reit enda pláss í kirkjugörðum ekki endalaust og þykir ekki nóg miðað við mannfjöldaþróun.  

Hefðin er rík en ekki meitluð í stein, segir Sigrún sem sest hjá Lindu Blöndal í þættinum 21 í mánudagskvöldið 29.október.

Útfararstofa kirkjugarðanna heldur fund þriðjudaginn 30.október í Grafarvogskirkju undir yfirskriftinni Að leiðarlokum: Hvað vil ég? Fundurinn hefst Kl.17 og stendur til 19. Hér  má sjá dagskrána en einnig verður flutt tónlist á fundinum.