Almenningur virðist vera að vakna til vitundar um alvarleika hlýnunar jarðar. Umfjöllun um loftslagsmál er nú meiri en nokkru sinni áður í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Í hverri viku eru fundir eða ráðstefnur þar sem fjallað er um loftslagsmál og leiðir til lausna og bekkurinn er nú oft þétt setinn, en stutt er síðan fáir komu á slíka fundi og lítið var fjallað um loftslagsmál, þau voru jaðarmál.
Vísindafólk hefur varað við þessari þróun í mörg ár en þar til nýlega voru loftslagsmál aðeins rædd af alvöru í grasrótarfélögum. Núna er umræðan komin uppá yfirborðið. Þrátt fyrir að almenningur virðist nú meðvitaðri um þá vá sem blasir við lífverum jarðarinnar að óbreyttu er neysla að aukast, sem þýðir aukna losun gróðurhúsalofttegunda og þar með aukna mengun, en losun jókst á Íslandi milli áranna 2016 og 2017. Þetta kom fram á RÚV í gær.
Börnin vekja von
Rannveig Magnúsdóttir, líffræðingur og sérfræðingur hjá Landvernd segist þrátt fyrir þetta fyrst núna vera vongóð um að breytingar séu framundan til góðs fyrir jörðina og líf á henni. Sú von, segir Rannveig að hafi kviknað þegar hin sænska Greta Thunberg, sextán ára gömul stúlka, steig fram á sjónarsviðið fyrir nokkrum mánuðum. Thunberg hefur hvatt nemendur til að taka þátt í skólaverkfalli fyrir loftslagið og viðbrögðin hafa ekki staðið á sér. Slík verkföll hafa verið víða um heim síðustu vikur, einnig á Íslandi, og hafa vakið gríðarlega athygli í fjölmiðlum um allan heim.
Pétur Halldórsson, formaður Ungra umhverfissinna og stjórnarmaður í Landvernd segir mjög mikilvægt að ungt fólk láti til sín taka í þessum málum. Á þau sé hlustað.
,,Við getum þetta”
Hér á landi hefur ungt fólk komið saman undanfarna föstudaga á Austurvelli til að mótmæla. ,,Líf okkar að veði” var skrifað á eitt skilti ungs mótmælanda á Austurvelli síðastliðinn föstudag, ,,Tíminn er á þrotum” á öðru, ,,Við getum þetta” og ,,Þetta reddast ekki” á enn öðru. Búið er að boða til samstillts alþjóðlegs loftslagverkfalls næstkomandi föstudag og hér á landi fer það fram á Austurvelli klukkan 12 á hádegi.
Rannveig og Pétur ræða loftslagsmál, neyslusamfélagið og aðgerðir unga fólksins við Margréti Marteinsdóttur í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.