Samkvæmt heimildum Hringbrautar eru meiri líkur en minni á að álverinu í Straumsvík verði lokað endanlega komi til þess að slökkt verði á öllu verinu vegna boðaðs verkfalls starfsmanna í byrjun næsta mánaðar.
Viðvarandi taprekstur hefur verið á álverinu og er ekki útlit fyrir að breyting verði þar á vegna lágs heimsmarkaðsverðs á áli og þeirrar staðreyndar að rekstrareining álvers Rio Tinto Alcan á Íslandi þykir óhagkvæm miðað við mjög mörg önnur álver sem samsteypan rekur um víðan völl. Rio Tinto hefur lokað fjórum álverum á undanförnum árum og dregið framleiðslu saman um fjórðung. Samkvæmt upplýsingum frá samsteypunni hefur hún dregið álframleiðslu sína saman um eina milljón tonna síðan 2009, eða sem nemur um 25% af heildarálframleiðslu. Samkvæmt nýlegri greiningu Wall Street Journal er ekki útlit fyrir að verð hækki í bráð. Ástæðan sé ofgnótt framleiðslu áls í Kína. Útfutningur þaðan hefur aukist um 15% það sem af er ári. Þá hafa Kínverjar aukið ársframleiðslugetu sína um 3 milljónir tonna á árinu og útlit fyrir að hún aukist um milljón til viðbótar áður en árið er úti.
Sjálfir hafa forsvarsmenn Rio Tinto á Íslandi sagt að ekki sé sjálfsagt að álverið opni aftur þar sem þetta sé mjög kostnaðarsöm aðgerð, en álverið á Íslandi verður hálfrar aldar gamalt á næsta ári.
Um 1500 manns missa vinnu sína verði af lokun álversins og er þá átt við fasta starfsmenn álversins og tengdra fyrirtækja sem hafa lifibrauð sitt af daglegri þjónustu við álverið. Lokun þess yrði ekki aðeins reiðarslag fyrir allt þetta starfsfólk heldur og Hafnarfjarðarbæ sem er skuldum vafinn og býr við 40 milljarða króna skuldaklafa.
Í svari við fyrirspurn fréttastofu RÚV um hvort til greina komi að loka álverinu til frambúðar segir upplýsingafulltrúi móðurfélagsins í Kanada, að fyrirtækið velti ekki vöngum yfir framtíð álversins náist ekki samningar. Allt kapp sé lagt á að semja.
Forsvarsmenn Landsvirkjunar vildu ekki tjá sig um málefni álversins á meðan kjaradeila stendur yfir. Rio Tinto er með orkusamning við Landsvirkjun til ársins 2036.