Meiri líkur á heilablóðfalli hjá grænmetisætum og grænkerum

Í nýrri rannsókn sem birtist í læknatímaritinu British Medical Journal kemur fram að það að sneiða alfarið hjá dýraafurðum eykur líkurnar á heilablóðfalli en minnkar líkurnar á hjartasjúkdómum. RÚV greinir frá.

Um stærðarinnar rannsókn var að ræða, þar sem 48.000 manns var fylgt eftir í allt að átján ár. Helmingur þátttakenda voru kjötætur, rúmlega 16.000 voru grænmetisætur eða grænkerar (e. vegan) og 7.500 manns borðuðu engar afurðir úr dýraríkinu nema fisk og aðrar sjávarafurðir.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar voru grænmetisætur og grænkerar 20 prósent líklegri en kjötætur til að fá heilablóðfall. Rannsakendur telja að það kunni að vera vegna ónógrar B12-vítamín inntöku.

Grænmetisætur og grænkerar voru hins vegar í 22 prósent minni hættu á að fá hjartasjúkdóma samanborið við kjötætur. Þá voru þeir sem borðuðu engar afurðir úr dýraríkinu nema fisk og aðrar sjávarafurðir í 13 prósent minni hættu en kjötætur.