Meiri áhyggjur af höftum en esb

Páll Harðarson forstjóri Kauphallarinnar / NASDAQ Iceland sagði í viðskiptaþættinum Hringtorgi í gærkvöld að markaðsaðilar í Kauphöllinni væru ekki jafn áhyggjufullir og ætla mætti í fyrstu út af viðræðuslitum stjórnvalda við Evrópusambandið. Hann kvaðst ætla að önnur mál hvíldu mun þyngra á forsvarsmönnum í íslensku viðskiptalífi og nefndi þar sérstaklega gjaldeyrishöftin. Menn spyrji sig óneitanlega hver stefna stjórnvalda sé í þeim málum; allir séu að velta fyrir sér hvað gerist næsta árið en enginn virðist hafa svör við því.  


Helga Valfells framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins tók undir þessi atriði með Páli Harðarsyni í þættinum í gærkvöld, en klippur úr honum má nú finna inn á hringbraut.is auk þess sem þáttinn má sjá þar í heild sinni undir sjónvarpsflipanum. Hún sagi að einu gilti þótt við Ísendingum sæktum um aðild að ESB eða ekki; það sem íslensk fyrirtæki væru öðru fremur að óska eftir væri stefna í peningamálum og öðrum stórvægilegum málum og að menn þar með vissu innan hvaða ramma þær væru að vinna.


Helga tók sérstaklega fram í þættinum að þrátt fyrir höftin fyndi hún fyrir áhuga fjárfesta á að taka þátt í uppbyggingarstarfi Nýsköpunarsjóðsins.