Hallgrímur Kristinsson, formaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kynningariðnaði, sagði á Hringbraut í gær að um 37 prósent landsmanna stunda ólöglegt streymi og niðurhal og að tap innlendra aðila vegna þessa 1,1 milljarður króna á ári.
Fjöldi ársverka í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði hér á landi er um 1.300 talsins. Heildarvelta framleiðslu og dreifingu kvikmynda og sjónvarpsefnis ásamt kvikmyndasýningum, dagskrárgerð og útsendingum sjónvarps og útvarps var 34,5 milljarðar króna árið 2014 og hefur veltan aukist um rúm 37% frá árinu 2009.
Þjóðbraut er á dagskrá öll virk kvöld kl.21.00. Þátturinn er endursýndur á Hringbraut í dag.