Meirihluti landsmanna, eða 54,6 prósent aðspurðra, er mjög eða frekar andvígur hugmyndum um að veggjöld verði innheimt til fjármögnunar uppbyggingar helstu stofnleiða vegakerfisins. Um þriðjungur landsmanna, eða 32,1 prósent aðspurðra er mjög eða frekar hlynntur upptöku veggjalda. Þetta kemur fram í könnun sem Zenter gerði að beiðni Fréttablaðsins.
Umhverfis – og samgöngunefnd Alþingis hefur lagt fram nefndarálit vegna samgönguáætlunar Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, til næstu 15 ára. Þar er kveðið á um upptöku vegtolla sem yrðu innheimtir á stofnbrautum frá Reykjavík og í öllum jarðgöngum landsins í þeim tilgangi að auka fjármagn til samgöngumála og flýta þar með fyrir brýnum framkvæmdum og bæta við nýjum ef þarf. Samgönguáætlunin er nú til meðferðar hjá nefndinni og bíður frekari umræðu.
„Mér finnst merkilega mikill stuðningur við veggjöld í ljósi þess að engar útfærslur liggja fyrir. Og sömuleiðis í ljósi þess að um umtalsverðar kerfisbreytingar er að ræða. Það er ágætt að rifja það upp að þegar Hvalfjarðargöng komu til sögunnar vorum við á svipuðum stað í umræðunni. Þá voru á milli 70 og 80 prósent þjóðarinnar á móti Hvalfjarðargöngum og stór meirihluti ætlaði aldrei að keyra þau,“ segir Sigurður Ingi í samtali við Fréttablaðið.