Meintur illvilji - öryrkjar fái jólamat

Málþóf stjórnarandstöðunnar hélt áfram langt fram á nótt í sal Alþingis í nótt í umræðu um fjárlagafrumvarpið. Steytir á skeri milli minnihlutans og meirihlutans um að hækka kjör bótaþega afturvirkt.

Einnig var nokkuð rætt um Ríkisútvarpið í nótt.

Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, sagði að „ósæmilegur illvilji byggi að baki hjá ríkisstjórnarinni gagnvart Rúv og átti þar við að stofnunin yrði að fá meira fé.

Alvarlegasta brotalömin væri þó að bótaþegar skuli ekki fá afturvirkar launahækkanir.

Þetta kom fram í andsvari Ögmundar við ræðu Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, Samfylkingu.

Sigríður Ingibjörg sagði fátækt lægst launuðu hópa samfélagsins slíka að fólk þyrfti að reiða sig á ættingja og vini vegna lágra bóta. Tillögur stjórnarandstöðunnar væru ekki róttækari en svo að hún væri að leggja til umbætur sem dygðu til þess að fólk gæti keypt í matinn fyrir jólin. Illskiljanlegt sé að þeir sem hafi verstu kjörin séu skildir eftir.